Leita í fréttum mbl.is
Embla

Gafst upp

á moggablogginu.

Farin aftur á blogger sem hefur batnað mjög síðan ég tók mér pásu. Þar eru 5 ár af blogginu mínu og þar líður mér best. Dagbókin mín á netinu: www.gudrunbirna.blogspot.com. 


Búin með Potter

Kláraði á mánudaginn. Fór í bíó í gær á 5. myndina með Hjördísi.

Bókin er mjög góð. Auðvitað er maður ekki sáttur við allt en á heildina litið get ég ekki annað en verið sátt. Þori lítið að segja... Ég lít á 7. bókina sem lokakaflann í stórkostlegri sögu um örlög, baráttu góðs og ills, vináttu, ást og hatur. Fær 5 stjörnur.

Myndin sem byggð er á 5. bókinni var ágæt. Pirraði mig svoldið hvernig aðalpersónurnar önduðu ótt og títt... og voru alltaf eins og þau væru svo stressuð - ekki hrædd. En það er bara ég. En myndin var óhugnanleg á köflum... meira ógeðsleg en ég gat ímyndað mér. Góða við myndirnar - hjálpar manni að sjá það sem maður gat ekki ímyndað sér nægilega vel.


Nánari lýsingar á hræðilega viðtalinu

Meira drama og meiri læti heldur en í BogB á góðum degi (horfi ekki á BB - veit bara þar er drama). Nú segir sagan að frænka hennar og fyrrverandi aðstoðarkona hennar (Alli) sé komin á band KFed og þau ásamt mömmu Brit séu að reyna að láta KFed fá forræðið.  Whatever.

Pæling: Þáttasería þar sem þessar stelpur eru teknar í gegn. Sé fyrir mér Dr. Phil, Opruh og jafnvel síblaðrandi Rachael Ray... Heyrst hefur að Linds og Brit séu farnar að selja papparössunum myndatækifæri og hringja sjálfar í slúðurblöð og slúðursíður til að fá pening. (fyrir dópi og drykkjum býst ég við.) The HORROR of it all!!! Hvernig endar þetta?

Hér er lýsing á viðtalinu þar sem Britney SNAPPAÐI í beinni.. og það ekki fyrsta skipti. Crazy crazy! Gætu verið lygar.. en eftir síðustu vikur er ég farin að trúa öllu sem slúðrararnir skrifa.


mbl.is Umtalað viðtal við Spears birt á föstudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppeldi..

Annar vill gera allt sjálfur en getur það ekki.

Hinn getur gert allt sjálfur en vill það ekki.

Stemningin er, sem fyrr, rífandi á heimilinu!


Mynd af Lohan í jailinu

Æi æ...

0724_mug

Hvað var málið með ökklabandið sem átti að fylgjast með drykkju og dópi stúlkunnar? Og á hún enga vini sem geta keyrt? Á hún ekki nóg af peningum fyrir leigara? Hvað er eiginlega málið? 


mbl.is Lindsay Lohan tekin ölvuð undir stýri með kókaín í fórum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfiðir dagar fyrir fjölskylduna

Potter-æðið hefur náð hámarki á heimilinu. Ég gerði lítið annað um helgina en að lesa. Keypti bókina um miðjan laugardag. Las mest í gær og er búin með 407 bls. Ég las á meðan KS horfði á einu Potter myndina sem hann á - kann hana næstum utanaf. Um kvöldið lásum við svo þriðja og fjórða kafla í fyrstu bókinni sem ég keypti handa honum fyrir helgi. Ég verð að þakka eignmanni mínum og fjölskyldu fyrir stuðninginn en það er erfitt að einbeita sér að dramatíkinni þegar maður á að vera að sinna öðru - öðrum. Við hjónin ræddum málið og ákváðum að það væri best að ég fengi frið til að klára bókina sem fyrst. Þá og aðeins þá getum við snúið okkur aftur að hversdagsleikanum... eða næstum því - ég held áfram að lesa fyrir KS eitt mesta ævintýri sem skrifað hefur verið. Nýja bókin er MÖGNUÐ!
mbl.is Uppgjör góðs og ills
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir minnislausa aðdáendur...

Hjördís fann þetta á netinu: http://www.scholastic.com/harrypotter/books/glossary.htm#

MJÖG sniðugt til að fá útskýringar og upprifjun.... þetta verður notað við lestur 7. 


Harry lendir í kvöld

Ég er hrikalega spennt! Næ líklegast ekki að fá bókina í kvöld en ég geri mér ferð á morgun og kaupi hana. Var að spá hvort ég ætti að kaupa hana á netinu. Bókin er á 50% afslætti á amazon UK (kringum þúsund kallinn - þá sendingarkostnaðurinn eftir) - en ég hef heimildir fyrir því að hún verði ekkert svo dýr hérna heima (minna en 3 þús). Get bara ekki beðið! Veit samt ekki hvort ég geti byrjað strax að lesa en minnið mitt er svo slæmt og nú reynir á að hafa tekið vel eftir alls konar í hinum bókunum. Well.... kannski bíómaraþon... veit ekki.

harrypdeathly

Las umfjöllun um nýjustu Harry myndina í Blaðinu um daginn og varð alveg brjáluð. Gaurinn sem skrifaði byrjaði á að segjast ekki hafa lesið bækurnar og ekki horft á hinar myndirnar. Svo gerði hann lítið úr því fullorðna fólki sem les bækurnar og ég veit ekki hvað og hvað. Þvílíka hörmungin. Þoli ekki þegar fólk getur ekki hamið sig í töffaraskap og látalætum.

Ef ég væri 15 þá væri ég í búning og í biðröð fyrir framan einhverja búð! Skammast mín bara ekkert fyrir það. Lengi lifi Harry Potter!

 


mbl.is Ævintýrum Harry Potters lýkur í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verslað á netinu

Eftir nokkrar tilraunir til að bjarga mér sjálf á netinu ákvað ég að versla mér myndavél frá USA með aðstoð Shop USA. Ég á eftir að fá myndavélina í hendurnar en ég veit að myndavélin og það sem ég pantaði er komið í vöruhúsið í USA. Þetta er mjög spennandi allt saman - ég fylgist með sendingunum með aðstoð netsins og sé liggur við pakkann hreyfast. Afskaplega skemmtilegt.

Canon A570

Fyrir þá sem eru að spá í að kaupa sér myndavél þá held ég að það borgi sig að kíkja á shopusa. Ég keypti mér myndavél, 2gb minniskort og tösku fyrir vélina á 22 þús. og fæ myndavélina senda alveg upp að dyrum. Hér heima hefði þetta kostað 42 þús. Munar um minna! Eins og ég þoli ekki að fara í búðir þá ELSKA ég að versla á netinu. Nú bíð ég bara spennt eftir að pósturinn komi með pakkann minn vei vei.


Gummi Freyr 30 ára

Ótrúlegt en satt þá er Gummi minn 30 ára í dag! Einnig mjög ótrúlegt en Bjarki varð 1 árs í gær.

Mikil afmælisstemmning á heimilinu. Við Gummi vorum að djóka með það í gær að um leið og BF varð einu ári eldri í gær þá urðum við foreldrarnir örugglega 2 árum eldri (einhverjar rannsóknir hafa meira að segja sagt það...).  Þetta gerir langvarandi svefnleysi.

GummiogBF

Svefnleysið venst. Bjarki grætur ekki á nóttinni en hann á það til að glaðvakna og vilja spjalla og hlæja. Mjög krúttlegt - en ekki á nóttinni. Undanfarnar nætur hefur hann sofið illa en er samt alltaf svo glaður og góður að það er varla hægt að kvarta. Hann grætur kannski smá en er svo himinlifandi þegar einhver sinnir honum. Oftast er það pabbi hans. Gummi er einstakur heimavinnandi húsfaðir. Það eru pottþétt ekki margir menn sem hafa tekið feðraorlofið af eins miklum krafti og afmælisbarn dagsins. Hann sér bókstaflega um allt! Hann heldur tilfinningaþrungnar ræður um hversu miklu órettlæti heimavinnandi húsmæður hafa þurft að þola gegnum árin á meðan hann heldur á Bjarka með einni og aðstoðar KS með hinni og fylgist með þvottavélinni og hugsar um allt sem þarf að gera á heimilinu. Samt erum við sammála um að það séu bara ekki nógu margar klukkustundir í sólarhringnum. Við náum aldrei að gera allt.

Gummi á afmæli í dag og við fáum að stela nokkrum mínútum saman í kvöld og ætlum út að borða - gömlu hjónin. Okkur finnst það svo ótrúlega skemmtilegt! Bara að fara aðeins saman út... hehe.

Innilega til hamingju með daginn sæti! 


Næsta síða »

Höfundur

Guðrún Birna Kjartansdóttir
Guðrún Birna Kjartansdóttir
Móðir, eiginkona, dóttir, systir, vinkona, útivinnandi húsmóðir í orlofi, lestrarhestur, sjónvarpsfíkill, skrappari, eyjapæja, brottfluttur Seltirningur, Kópavogsbúi, fyrrv. au-pair, starfsmaður Morgunblaðsins, ópólitískur jafnréttissinni með BA próf í stjórnmálafræði.

Bækur

Bækur

  • Bók: Anybody Out There?
    Marian Keyes: Anybody Out There?
    Átti mjög erfitt með að komast inn í þessa bók. Hef lesið slatta eftir þennan höfund en þessi bók var allt öðruvísi og hefði mátt stytta slatta (hvað er málið með mig og hafa enga þolinmæði). Æi var ekki að fíla þetta enda svoldið sorgleg og þessa dagana vil ég bara skemmtun, stuð, hlátur og fjör. (lesin vor 2007)
    **
  • Bók: Judge and Jury
    James Patterson og Andrew Gross: Judge and Jury
    Sumarfríslesningin var aðeins of hræðileg fyrir minn smekk. Ekki að bókin sé hræðileg en ég vil frekar léttmeti og skemmtun, smá spennu jú jú. Kláraði samt bókina og þokkalega ánægð með. 2 og hálf stjarna samt.
    **
  • Bók: Shopaholic and Baby
    Sophie Kinsella: Shopaholic and Baby
    Ágæt skemmtun og fyndin á köflum. Becky Brandon er söm við sig og fer á kostum á milli þess sem hún kaupir yfir sig af merkjavöru fyrir barnið sitt. Vantaði eitthvað upp á fannst mér.. aðeins of yfirborðskennd en það er nú bara Becky í hnotskurn.
  • Bók: Whitehorn Woods
    Maeve Binchy: Whitehorn Woods
    Dæmigerð Binchy. Ljúf og góð lesning. Aðeins of margar persónur en bókin er eins og oft hjá Binchy eins konar smásögusafn. Allt tengist í gegnum staðinn Rossmore á Írlandi. Sumir kaflarnir mjög heillandi aðrir ekki eins og í lokin fannst mér eins og eitthvað vantaði. Önnur bók fylgir líklega... Það væri mjög Binchy-legt!
    ***
  • Bók: Fingersmith
    Sarah Waters: Fingersmith
    Spennandi örlagasaga sem kom oft á óvart. Á köflum of langdregin en vel skrifuð og ég gat ekki hætt að lesa - sem segir sitt. Hefði sett 3 og hálfa en það er ekki hægt.
    ****
  • Arnaldur Indriðason: Konungsbók
    Spennandi og vel skrifuð. Aðeins of ótrúleg á köflum en ágæt spennusaga með sögulegu ívafi.
    ***
  • Marian Keyes: The Other Side of The STory
    ***

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband