Guðrún Birna Kjartansdóttir
Ég heiti Guðrún Birna og hef bloggað í 4 ár. Ég er gift tveggja barna móðir sem finnst gaman að lesa blogg og hef stundum óstjórnanlega mikla þörf til að tjá mig. Þó hef ég stundum forðast að segja nákvæmlega það sem mér finnst um hitt og þetta og nota bloggið frekar sem nokkurs konar dagbók. Það er lífsnauðsynlegt fyrir mig að geta flett annað slagið upp í lífi mínu því ég á það til að vera alveg minnislaus enda fiskur. Mig langar þó að fara að tjá mig meira um hitt og þetta og ef til vill er þetta staðurinn fyrir það. Ætli fæðing sé í nánd eftir mjög langa meðgöngu?
Færsluflokkar
Bækur
Bækur
-

: Anybody Out There?
Átti mjög erfitt með að komast inn í þessa bók. Hef lesið slatta eftir þennan höfund en þessi bók var allt öðruvísi og hefði mátt stytta slatta (hvað er málið með mig og hafa enga þolinmæði). Æi var ekki að fíla þetta enda svoldið sorgleg og þessa dagana vil ég bara skemmtun, stuð, hlátur og fjör. (lesin vor 2007)
-

: Judge and Jury
Sumarfríslesningin var aðeins of hræðileg fyrir minn smekk. Ekki að bókin sé hræðileg en ég vil frekar léttmeti og skemmtun, smá spennu jú jú. Kláraði samt bókina og þokkalega ánægð með. 2 og hálf stjarna samt.
-

: Shopaholic and Baby
Ágæt skemmtun og fyndin á köflum. Becky Brandon er söm við sig og fer á kostum á milli þess sem hún kaupir yfir sig af merkjavöru fyrir barnið sitt. Vantaði eitthvað upp á fannst mér.. aðeins of yfirborðskennd en það er nú bara Becky í hnotskurn. -

: Whitehorn Woods
Dæmigerð Binchy. Ljúf og góð lesning. Aðeins of margar persónur en bókin er eins og oft hjá Binchy eins konar smásögusafn. Allt tengist í gegnum staðinn Rossmore á Írlandi. Sumir kaflarnir mjög heillandi aðrir ekki eins og í lokin fannst mér eins og eitthvað vantaði. Önnur bók fylgir líklega... Það væri mjög Binchy-legt!
-

: Fingersmith
Spennandi örlagasaga sem kom oft á óvart. Á köflum of langdregin en vel skrifuð og ég gat ekki hætt að lesa - sem segir sitt. Hefði sett 3 og hálfa en það er ekki hægt.
-
: Konungsbók
Spennandi og vel skrifuð. Aðeins of ótrúleg á köflum en ágæt spennusaga með sögulegu ívafi.
-
: The Other Side of The STory

