Leita í fréttum mbl.is
Embla

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Á leiðarenda

Mikið svakalega hafa síðustu vikur og mánuðir verið ljúfir. Þrátt fyrir að hafa lítið komist út vegna veðurs og astma litla kúts þá höfum við notið þess að vera saman inni. Veðrið hefur oft verið fallegt og þá hefur mér fundist ágætt að horfa út um gluggann og láta mig hlakka til sumarsins og vorsins. Við höfum hlustað á rás2 og dundað okkur við heimilisstörf (lykilorð hér dundað). Svo leggjum við okkur saman þegar við erum þreytt. Þá hefur Bjarki sofið vært og ég stundum líka en stundum nota ég tímann til að vafra um í tölvunni eða lesa bók. Gummi er í fjölskylduvænu starfi og hefur því oft getað komið heim og klárað verkefni heima við, sótt Kjartan Svein snemma og við dúllað okkur saman við að gera lítið sem ekki neitt. 

101_3221

Áætlanir mínar um rútínu og reglu hafa ekki staðist og eru ekki innan þess ákveðna tímaramma sem settur var upp í byrjun árs og enn á ég í nokkru basli með að koma reglu á. Það er smá regla en ekki heragi. Oft er hófið gott en í alvöru talað þá er þetta rugl hvernig barnið sefur. Hann er byrjaður að borða og beljan fær ágætt frí yfir daginn. Kálfurinn er í góðum holdum og finnst fátt betra en að fá sér smá sopa á kvöldin, nóttinni og í morgunsárið (nóttinni). Hann fær þetta að sjálfstögðu ekki.. bara stundum.

Tíminn sem við höfum átt saman hefur verið yndislegur. Bjarki Freyr er rólegur og ljúfur, brosmildur og hress. Hann á eftir að skemmta sér vel með pabba sínum og ég hef minnstar áhyggjur af honum. Hann dýrkar pabba sinn :-) Ég er strax farin að hafa áhyggjur af áhyggjum mínum. Það eru þessir litlu hlutir sem mamman þykist vita best um, en pabbinn veit alveg fullt líka.  Mamman heldur að hún ein geti huggað barnið, séð hvenær hann er svangur, þreyttur, leiður eða með óhreina bleyju. Þetta er mesta vitleysa í heimi... og það á Gummi eftir að sýna mér og sanna. Litlu hlutirnir - eins og að fötin séu þægileg (ekki of lítil og ekki of þröng), rétta skeiðin sé notuð (sem er pottþétt ekkert eina rétta nema í mínum huga), passa upp á að rútínan haldist svona eins og mögulegt er, og ef að farið er út með drenginn þá verða fötin að vera í stíl og í réttu númeri. Heyrst hefur að einn pabbi sé alveg sannfærður um að úlpa í stærð 98 3years sé fín fyrir 8 mánaða kút. Rúm og hlý. Það er alveg bannað að leiðrétta svona umhyggjusama feður en rétt er að benda á að fatastærðin er oftast nálægt hinu réttu.

Gummi er betri en ég í mörgu og ég betri en hann í einhverju öðru. Þess vegna vinnum við vel saman. Hann vill reyndar hafa alla glugga lokaða en ég vil opna þá... og ég vona geðheilsu okkar beggja vegna að hann hugi að þessum þáttum og opni glugga svona korteri áður en að ég kem heim úr vinnu.


Einstæð móðir en alls ekki ein

Helgin var fljót að líða enda nóg að gera hjá fjölsk. Gummi var að týnast í lest í Germany og við heima gerðum ýmislegt til að stytta okkur stundir á meðan. Ég fékk mikla hjálp frá fjölskyldunni og ég þakka innilega fyrir. Á meðal þess sem gert var frá fimmt. til sunnudags, kaffihús með girls, bókasafnsferð, föndurbúðaferð, kíkti upp í vinnu, fór í lunch með Þóru, fór í búð með mömmu, fékk heimsókn og félagsskap með X-faktor en Ásta kom og við tókum smá skrapp og skraf session, hlustaði á Jónsa syngja fyrir mágkonu mína (æðislega gaman), KS fór í íþróttaskólann og í afmælispartý og á MC, fór í stelpupartý til heiðurs gæs dagsins (líka æðislegt) og við enduðum helgina á að fara í húsdýragarðinn þar sem ekkert virkaði, engin lest og engin hringekja, engir fuglar en það þarf lítið til að gleðja lítil hjörtu og við pabbi, KS og Bjarki Freyr áttum góða stund saman.
Á milli þess sem ég nefni hér að ofan reyndi ég að setja í vél, taka til, ganga frá þvotti og allt hitt.... hugsa um börnin mín og mig sjálfa. Við tókum svo GLÖÐ á móti Gumma þegar hann kom þreyttur heim eftir frábæra ferð í Germany. Hann var í góðum höndum hjá Sverre og frúnni og var svo glaður að fá að sjá hvað þau hafa það gott í handboltaparadís.
Gummi stóð sig vel í HogM og keypti góðan slatta á strákana vei vei. KS fékk Playmo en hann stóð sig eins og hetja sem húsbóndinn á heimilinu á meðan pabbi var í útló. Átti alveg skilið smá verðlaun :-) Svo var rosa krúttlegt að sjá hvað Bjarki Freyr var glaður að sjá pabba sinn - var alveg að fatta að pabbi hans var kominn heim og greinilega búinn að sakna hans. Æði bara allt saman. Næsta helgi verður aðeins öðruvísi og meira í okkar stíl.. - njótum lífsins eins og KS segir en í hans augum þýðir það að hanga og gera ekkert. Mjög nice!

Skemmtilegustu stundir dagsins

Sumar stundir eru ótrúlega dýrmætar. Eins og þegar Bjarki vaknar eftir blundinn sinn og þegar ég fer að sinna honum og hann sér mig þá brosir hann svo innilega að manni bara hitnar að innnan. Alltaf góð stund - þó að hann vakni einmitt þegar ég var að setjast niður til að fá mér að borða, var að stíga inn í sturtu eða e-ð álíka... það er bara alltaf svo gott að sjá þetta bros. 

Annað alveg uppáhalds er að fara með bænirnar með KS og spjalla aðeins fyrir svefninn. Hann á það til að fara á trúnó og það er mjög skemmtilegt. Þarf stundum að passa mig að hlæja ekki. Umræðurnar snúast oft um krakkana á leikskólanum, daginn í dag eða bara eitthvað sem hann er að pæla. Hann pælir ansi mikið um margt. 

Mér finnst alltaf gaman þegar Gummi og KS koma heim og ég heyri í þeim í stiganum áður en þeir koma inn. Þeir tala ekki mjög lágt! 

Það er ljúft að vera ein að dundast í tölvunni eða skoða blöðin. Meira að segja getur mér fundist fínt að ganga frá þvotti ef ég er að hlusta á skemmtilega tónlist.

Við Gummi eigum oft rosalega fínar stundir þegar við erum að undirbúa matinn, ég að skera niður tómata og hann að steikja kjúkling t.d. - það er mjög nice :-) Svo píni ég hann til að horfa á alls konar þætti og hann talar í símann á meðan eða þykist vera að fylgjast með en er að hugsa um hvað hann ætlar að kenna krökkunum næsta dag.... Mjög skemmtilegt.

Það eru þessir litlu hlutir - ekki stórir og dýrir hlutir. Jebbs. 


Afmælisbarn dagsins

er hálfs árs. Bjarki Freyr er 6 mánaða í dag Wizard Afmælisbarnið ákvað að sofa til hádegis í tilefni dagsins. Það er stemning í loftinu og nú getur krílus farið að fá allt sem 6 mán. börn mega fá, meiri graut og stoðmjólk, saxaða og soðna ávexti og annað gotterí. En í dag er það hátíðargrautur sem litla bollan fær. Hann er ánægður með lífið, latur og ljúfur. Veltir sér bara á hliðina - þegar hann nennir. Situr ágætlega óstuddur í nokkra stund, hjalar og hlær og þá sérstaklega þegar stóri bróðir gefur sér tíma til að leika við hann. 

Myndir og nánari fréttir af afmælisbarninu á síðu bræðranna. 


Höfundur

Guðrún Birna Kjartansdóttir
Guðrún Birna Kjartansdóttir
Móðir, eiginkona, dóttir, systir, vinkona, útivinnandi húsmóðir í orlofi, lestrarhestur, sjónvarpsfíkill, skrappari, eyjapæja, brottfluttur Seltirningur, Kópavogsbúi, fyrrv. au-pair, starfsmaður Morgunblaðsins, ópólitískur jafnréttissinni með BA próf í stjórnmálafræði.

Bækur

Bækur

  • Bók: Anybody Out There?
    Marian Keyes: Anybody Out There?
    Átti mjög erfitt með að komast inn í þessa bók. Hef lesið slatta eftir þennan höfund en þessi bók var allt öðruvísi og hefði mátt stytta slatta (hvað er málið með mig og hafa enga þolinmæði). Æi var ekki að fíla þetta enda svoldið sorgleg og þessa dagana vil ég bara skemmtun, stuð, hlátur og fjör. (lesin vor 2007)
    **
  • Bók: Judge and Jury
    James Patterson og Andrew Gross: Judge and Jury
    Sumarfríslesningin var aðeins of hræðileg fyrir minn smekk. Ekki að bókin sé hræðileg en ég vil frekar léttmeti og skemmtun, smá spennu jú jú. Kláraði samt bókina og þokkalega ánægð með. 2 og hálf stjarna samt.
    **
  • Bók: Shopaholic and Baby
    Sophie Kinsella: Shopaholic and Baby
    Ágæt skemmtun og fyndin á köflum. Becky Brandon er söm við sig og fer á kostum á milli þess sem hún kaupir yfir sig af merkjavöru fyrir barnið sitt. Vantaði eitthvað upp á fannst mér.. aðeins of yfirborðskennd en það er nú bara Becky í hnotskurn.
  • Bók: Whitehorn Woods
    Maeve Binchy: Whitehorn Woods
    Dæmigerð Binchy. Ljúf og góð lesning. Aðeins of margar persónur en bókin er eins og oft hjá Binchy eins konar smásögusafn. Allt tengist í gegnum staðinn Rossmore á Írlandi. Sumir kaflarnir mjög heillandi aðrir ekki eins og í lokin fannst mér eins og eitthvað vantaði. Önnur bók fylgir líklega... Það væri mjög Binchy-legt!
    ***
  • Bók: Fingersmith
    Sarah Waters: Fingersmith
    Spennandi örlagasaga sem kom oft á óvart. Á köflum of langdregin en vel skrifuð og ég gat ekki hætt að lesa - sem segir sitt. Hefði sett 3 og hálfa en það er ekki hægt.
    ****
  • Arnaldur Indriðason: Konungsbók
    Spennandi og vel skrifuð. Aðeins of ótrúleg á köflum en ágæt spennusaga með sögulegu ívafi.
    ***
  • Marian Keyes: The Other Side of The STory
    ***

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband