20.7.2007 | 10:26
Verslað á netinu
Eftir nokkrar tilraunir til að bjarga mér sjálf á netinu ákvað ég að versla mér myndavél frá USA með aðstoð Shop USA. Ég á eftir að fá myndavélina í hendurnar en ég veit að myndavélin og það sem ég pantaði er komið í vöruhúsið í USA. Þetta er mjög spennandi allt saman - ég fylgist með sendingunum með aðstoð netsins og sé liggur við pakkann hreyfast. Afskaplega skemmtilegt.
Fyrir þá sem eru að spá í að kaupa sér myndavél þá held ég að það borgi sig að kíkja á shopusa. Ég keypti mér myndavél, 2gb minniskort og tösku fyrir vélina á 22 þús. og fæ myndavélina senda alveg upp að dyrum. Hér heima hefði þetta kostað 42 þús. Munar um minna! Eins og ég þoli ekki að fara í búðir þá ELSKA ég að versla á netinu. Nú bíð ég bara spennt eftir að pósturinn komi með pakkann minn vei vei.
Færsluflokkar
Bækur
Bækur
-

: Anybody Out There?
Átti mjög erfitt með að komast inn í þessa bók. Hef lesið slatta eftir þennan höfund en þessi bók var allt öðruvísi og hefði mátt stytta slatta (hvað er málið með mig og hafa enga þolinmæði). Æi var ekki að fíla þetta enda svoldið sorgleg og þessa dagana vil ég bara skemmtun, stuð, hlátur og fjör. (lesin vor 2007)
-

: Judge and Jury
Sumarfríslesningin var aðeins of hræðileg fyrir minn smekk. Ekki að bókin sé hræðileg en ég vil frekar léttmeti og skemmtun, smá spennu jú jú. Kláraði samt bókina og þokkalega ánægð með. 2 og hálf stjarna samt.
-

: Shopaholic and Baby
Ágæt skemmtun og fyndin á köflum. Becky Brandon er söm við sig og fer á kostum á milli þess sem hún kaupir yfir sig af merkjavöru fyrir barnið sitt. Vantaði eitthvað upp á fannst mér.. aðeins of yfirborðskennd en það er nú bara Becky í hnotskurn. -

: Whitehorn Woods
Dæmigerð Binchy. Ljúf og góð lesning. Aðeins of margar persónur en bókin er eins og oft hjá Binchy eins konar smásögusafn. Allt tengist í gegnum staðinn Rossmore á Írlandi. Sumir kaflarnir mjög heillandi aðrir ekki eins og í lokin fannst mér eins og eitthvað vantaði. Önnur bók fylgir líklega... Það væri mjög Binchy-legt!
-

: Fingersmith
Spennandi örlagasaga sem kom oft á óvart. Á köflum of langdregin en vel skrifuð og ég gat ekki hætt að lesa - sem segir sitt. Hefði sett 3 og hálfa en það er ekki hægt.
-
: Konungsbók
Spennandi og vel skrifuð. Aðeins of ótrúleg á köflum en ágæt spennusaga með sögulegu ívafi.
-
: The Other Side of The STory


Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.